orð dagsins á bibbi í athugasemd á siggubloggi; legsúrnun. í huga manneskju sem hefur tekið á móti dauðu lambi fylgir þessu orði lykt, og hún ekki geðsleg. takk bibbi minn, nú getur mig dreymt eitthvað fallegt næst þegar ég fæ einhvern ástandstremma. annars er nákonan neðan við norðurstíginn eitthvað að hóta útköstum um jólin en ég vona að heiðlaugur svan haldi sig á mottunni fram yfir áramót. aðallega vegna þess að ég held að það sé ömurlegt að eiga ammli á jólunum. allt of auðvelt að sameina gjafirnar manns :þ
fyrsta jólaæfing hrauns fór fram með ágætum, textar og útsetningar að mestu komin á hreint. sé fram á að framlag yfirnornar ástu þetta árið verði mitt uppáhalds. | fangor 23:50