við martini lögðum á okkur skemmtanasetu á rósenberg fram eftir nóttu og sitjum uppi syfjuð í dag. var þar í góðum félagsskap leikfélaganna, raritetar, kjartans, og tengdo úr þorlákshöfn ásamt mínum eigin foreldrum. mikið var nú gaman, og strákarnir mínir flinkastir.
það var sérdeilis ánægjulegt að sjá nokkra nýgræðinga á hraungiggum úr röðum hugleiks skemmta sér konunglega. ég var alveg búin að gleyma því hvað það er gaman að sjá fólk uppgötva bandið í fyrsta skipti og standa á öndinni yfir hæfileikum og almennu skemmtanagildi drengjanna.
setti inn hlekk á snillinginn hann bibba hér til venstre. á eftir að bæta fleirum við. ef einhverjum finnst skortur á sér í listanum sá hinn sami gjarnan rita athugasemd í þar til gert kerfi.
í dag fáum við hugleikarar að vera með í að kveikja á jólatrénu á austurvelli. sem hlýtur að þýða að við séum fræg og merkileg....:þ
*viðbót: ekki jafn fræg og merkileg og ég verð þegar ég hef náð tökum á þessari græju. alltaf grunað að þetta með að æfa sig á alvöru tæki væri tímasóun. pant halda fyrstu tónleikana!* | fangor 11:41