var að koma frá siggu á spítalanum, stúlkan er hin yndislegasta, vel hærð og dálítið eins og lítill álfur í framan. hún er ennþá með dálítinn bjúg eftir átökin og er því með risastórar kinnar sem er bara sætt. hún fæddist 15 merkur og 49 cm, afskaplega temmileg í alla staði. foreldrarnir eru hinir kátustu og ætla sér heim á leið um kvöldmat. ég kom út með klakhljóðum og hlakka til að fá martini í hendurnar. ég er akkúrat komin 6. mánuði á morgun sem þýðir að´ef hann kæmi í heiminn eftir tvær vikur ætti hann dágóða möguleika á því að lifa góðu lífi. ( með aðstoð til að byrja með reyndar. ) það þykir mér ákaflega merkilegt, en jafnframt dálítið ógnvekjandi. vonast nú til að hann haldi sér hið fastasta fram yfir tuttugasta maí samt. jg vill fá 06.06.06 en ég er ekki til í tvær aukavikur þrátt fyrir að það sé einkar kúl dagsetning.
seinnipartinn koma nördarnir okkar í heimsókn og er ætlunin að spila drekaspil fram eftir kvöldi með kjötsúpuhléi þegar hungrið sverfur að. það held ég verði gaman. | fangor 13:55