fór að sjá meistarastykkið bíbí og blökuna í gærkveldi ásamt fríðum flokki fólks. hef ætlað mér á sýninguna síðan 2000 svo ekki var seinna vænna. ekki varð ég fyrir vonbrigðum, óska aðstandendum öllum innilega til hamingju og takk fyrir mig. jg er floginn á vit frægðar og frama, ég ætla í sveitina á meðan. veit að litla húsið mitt á seyðisfirði saknar mín svo ég mun heimsækja það og reyna að dvelja sem lengst. kannski kemst ég á sjó líka. fátt dægilegra en að rúnta út í fjörð og dorga sér fisk í soðið. seiseijá. með spekingslegum svip og bora í nefið....eða var það ekki það sem skáldið kvað? | fangor 20:35