á vefnum tónlist.is stendur yfir kosning á vinsælasta lagi ársins. höfum við fyrir því áræðanlegar heimildir að um efsta sætið berjist nú my delusions með ampop og einhver vellan með _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _. *( ritskoðað, þetta er víst leyndó. svo nafnið er ekki skilgreint nánar en það má giska )* mig langar þess vegna að biðja ykkur um að taka þátt í kosningunni...*hóst,hóst* verðlaun verða afhent á íslensku tónlistarverðlaunahátíðinni næsta miðvikudag, og strákana langar svo mikið til að fá einhver verðlaun...þ þykjast ekki eiga miklar vonir í verðlaun í flokkunum sem þeir eru tilnefndir í, enda margir stórtalentar þar á ferð; s.s nýkjörinn kynþokkafyllsti karlmaður íslands að mati hlustenda rásar tvö.
tónleikarnir gengu ljómandi vel, fullt var út úr dyrum og hin stórskemmtilega sveit ég hitaði upp. margt fyrirmenna heilsaði upp á sveitina eftir gigg, allir voða glaðir. óneitanlega fyndið að horfa upp á poppstjörnustatus í framleiðslu, sérstkalega þegar fólk fellur fyrir því.
*hugs* það er dálítið skrýtið að kjósa "vinsælasta" lag ársins. einhvernvegin felst það í merkingunni að mörgum hafi þótt það skemmtilegt. þú ert þess vegna eiginlega ekki að kjósa lagið sem þér fannst skemmtilegast, heldur lagið sem þú heldur að öllum hinum hafi þótt skemmtilegast...sem gerir valið auðvitað miklu auðveldara fyrir mig. svona í ljósi viðtakanna sem lagið hlaut á tónleikunum í gærkveldi... *blístr* | fangor 19:38