æ hvað mér leiðast íslendingar. hættum-tónleikarnir eru eitthvað mest misheppnaða fyrirbrigði ársins, sem er vel að merkja nýbyrjað og þeir ekki búnir. hvers vegna? jú, einfaldlega vegna þess að þeir skipta engu máli. breyta engu. gera ekkert. ef eitthvað vit væri í hausnum á þessu liði hefði það lagt áhersluna á eftirfylgni, að reynt verði að lagfæra og græða upp í kring um allar þessar framkvæmdir eftir þeim lýkur, og mótmæla frekari framkvæmdum annars staðar á landinu. að þær verði stöðvaðar? fráleitt.löngu samið, gripið og greitt. allt leyfilegt. og þó það gerðist, hefur einhver farið upp í kárahnjúka? hafið þið séð umfangið á þessu dóti öllu saman? allt jarðraskið sem búið er að valda á svæðinu? nei, líklegast ekki. hætta bara? og gera hvað við svæðið? það er í rúst. 70% af þessu fólki hefur ekki hugmynd um hvað hefur gangið þarna á í raun og veru. í alvörunni, hefur fólk ekkert betra að gera? hefði kannski átt að skipuleggja mótmælatónleika meðan ennþá var eitthvað hægt að gera í málunum? ætti kannski að mótmæla einhverju öðru, sem hugsanlega væri hægt að hafa áhrif á og hefur þýðingu í dag? nei. það er ekki gert. ekki hægt. vegna þess að þá er fólk til vandræða og styggir stórfyrirtækin sem listafólk upp til hópa lifir á þessa dagana. mótmæla háum flugfargjöldum til dæmis? ekki þeir tónlistarmenn sem þurfa að nota loftbrú. ekki leiklistarfólk eða myndlistarmenn sem fá styrki frá flugleiðum til að komast erlendis með sýningarnar sínar. neineinei. mótmælum til að vera hipp, kúl og artý fólk með skoðanir, pössum okkur bara að mótmæla engu sem gæti í alvörunni skipt máli og haft eitthvað að segja. húmbúkk! | fangor 19:04