er aftursnúin úr bílferð dauðans vestur á firði. hef átt í samskiptaörðugleikum við blogger sem virðist hafa gengið í lið með stofnunum landsins til að gera mér lífið leitt. það var ósköp gott að fara vestur í kyrrðina, athöfnin var ákaflega falleg og gaman að hitta stórfjölskylduna alla samankomna. ég náði að sjá framan í frú ringsted og tuma mág minn á langa manga, var það hið besta mál. legg þó ekki á mig frekari bílferðalög yfir klukkutímalengdum fyrr en eftir barneign, er algerlega búin með batterín og fékk skammir fyrir frá ljósmæðrunum mínum í dag.
sit eins og límd við sjónvarpið yfir lost, tími engan vegin að horfa á þættina í tölvu þrátt fyrir að litli kútur hafi hlaðið fyrstu tólf þáttunum inn í kjölturakkann minn. einhvernvegin finnst mér leiðinlegt að horfa á sjónvarpsþætti í tölvu, alveg eins og mér finnst að lesa bækur í tölvunni. ég er sennilega svona afskaplega gamaldags þegar kemur að þessum hlutum. eins og ég er nú lítið gamaldags þegar kemur að öðrum.
ég er að íhuga að senda skipulagsnefndarfólkinu kúk í pósti. | fangor 22:47