ég bíð spennt ásamt nábúum mínum eftir viðbrögðum skipulagsnefndar við athugasemdabréfinu sem við sendum inn til mótmæla fyrirhuguðum framkvæmdum hér við hliðina. ég fékk upphringingu frá dv í dag, svo einhver hefur tekið eftir athugasemdunum. á reyndar eftir að sjá hvernig þeir höndla þessa meintu frétt, ég vildi ekki hleypa þeim inn til að taka myndir af útsýni eða af okkur til að nota með fréttinni, ég sé einhvernvegin fyrir mér fyrirsögnina "ófrísk kona hrekst af heimili sínu..." og nenni ekki að standa í þeim pakka strax. ef hins vegar ekkert mark verður á okkur tekið gríp ég til allra ráða, þó að það þýði viðræður við dv. það verður bara að koma í ljós. samskipti mín við aðrar stofnanir sem ég hef þurft að eiga við undanfarið hafa verið með slíkum ágætum að ég er farin að fyllast grunsemdum um að sá kvóti sé búinn. þegar maður fær prýðisþjónustu auk óumbeðinnar aðstoðar frá ríkisskattstjóra og vinaleg bros frá afgreiðslu tollstjóra er eitthvað dularfullt á ferð. tryggingastofnun vill allt fyrir mig gera... ég er viss um að skipulagsnefnd bætir fyrir þetta með því að hundsa allar athugasemdir.
nú eða himnarnir hrynja.
bendi lesendum á að skoða myndina sem ylfa linkaði inn í athugasemd við síðustu færslu. ég vona að þetta verði ekki raunin, en ég sagði mig á sósíalinn í dag sökum óléttu og það eru tólf vikur eftir. ég segi nú bara eins og konan hér um árið: ííííík! | fangor 19:49