ég er enn á lífi. og merkilegt nokk, sama á við um þjónustufulltrúa símans sem kippti nettenginu heimilisins í lag á mettíma. öfugt við þjónustustúlku satans frá sama fyrirtæki sem reyndi í gærkveldi að telja mér trú um að vandræði við nettenginguna stöfuðu af torkennilegum málmhlutum sem skyndilega hefðu vaxið í veggjum hússins. "jú, það er sko oft þannig í svona gömlum húsum sko þúst.." hún var heppin að ég náði ekki til hennar. legg ég á og mæli um að tenging haldist nú til friðs næstu mánuðina *áhrín*.
stympnir hittast til æfinga í kvöld og á ég von á skemmtan bestu. svo er um að gera fyrir alla að rölta við í hafnarhúsinu annað kvöld og klappa fyrir okkur, afþví við erum svo sæt þó ekki væri annað.