ég ákvað að nenna ekki stofnanaflakkinu í dag. ætla að nota mánudag til þess, hann er hvorteðer ætlaður til mæðu.
foreldrarnir litu inn, þau eru að fara á árshátíð í hveragerði um helgina. ég er búin að senda alla strákana mína í spilamennsku víðs vegar um heiminn svo ég ligg ein heima hjá mér yfir ædolinu í kvöld, ef einhvern langar í heimsókn er það gvuuuðvelkomið. og vel þegið.
er annars að fara yfir um af hneykslan vegna fyrirhugaðrar lagasetningar gegn reykingum sem á að keyra í gegn um þingið undir yfirskini vinnuverndar, fasistaríkið ísland þokast nær og nær. hegðun múslimskra mótmælenda fer endalaust í taugarnar á mér, ég get ekki séð hvernig fánabrennsla og sendiráðsníðsla á að styrkja málstað fólks sem berst gegn tjáningarfrelsi annara ríkja. ég finn hvernig fordómaöldurnar stækka og flæða yfir samfélög "siðaðra" þjóða. það var nú akkúrat það sem við þurftum var það ekki.
ég hlakka endalaust til að sjá svandísi mína og hana heiðu rachel. ylfu sendi ég samúðar- og baráttukveðjur með óskum um að hlutirnir fari nú að ganga betur hjá slektinu. | fangor 17:15