mig laangar svo til útlanda. sól, hiti, sjór til að baða sig í, matur á skynsamlegu verði, rauðvín í lítratali, (líka á skynsamlegu verði) markaður með fersku grænmeti á næsta götuhorni.....*dreymið andvarp*
fékk svona heiftarlega sumarþrá í sveitaferðinni þar sem við keyrðum framhjá manni sem var að dreifa skít á túnin hjá sér. í miðjum febrúar. afþví að það er farið að grænka. þetta er náttúrulega ekki nokkur hemja... | fangor 18:38