það ríkir almennt andleysi yfir heimilinu. ég held því fram að þetta stafi af því að síðustu daga hef ég horft á boltaleiki í sjónvarpinu mínu og eins og allir vita er slíkt heiladrepandi fram úr hófi.
rokkstjarnan flýgur til parísar í nótt og snýr aftur á laugardaginn. vonast til að hann fái aðeins að líta borgina augum fyrst hann er nú að fara á annað borð.
trymmnir munu safnast saman á sunnudag ef hægt er til að spinna upp hrynverk fyrir safnanótt, verð í sambandi við hlutaðeigandi ef af verður.
ég er komin með feituna sem siggalára er að losna við, þykir oss það mál hið versta. verð orðin eins og sundbolti með lappir innan skamms ef svo heldur sem horfir.
á morgun bíða mín samskipti við tryggingastofnun, ríkisskattstjóra og skipulagsnefnd reykjavíkurborgar. bara tilhugsunin kallar fram taugalífeðlisfræðileg viðbrögð af versta tagi. *andvörp* | fangor 18:32