stympnir hafa orðið og voru undirtektir með eindæmum góðar í húsi hafnarinnar. verður framhald á samstarfinu.
raritet mín ástkær átti ammli í gær, og ég gleymdi að óska henni til hamingju. hún fær því ammliskveðjurnar í dag; innilega til hamingju sætust og skemmtu þér vel í höfn kaupmannanna. ég vonast til að hitta hana yfir uppbótarkaffi fljótlega. svona áður en ég verð of ólétt til að geta hreyft mig, þess er ekki langt að bíða. með þessu áframhaldi get ég toppað myndina hennar ylfu og er þá mikið sagt.
við jg verðum með stutt stompnámskeið fyrir börn á ldrinum 10-12 ára í laugalækjaskóla á morgun, tilefnið er alheimsdagur barna. þetta verður hin skemmtilegasta dagskrá með alls konar vinnusmiðjum, svo ef þið þekkið börn á þessum aldri sem langar að prufa eru þau velkomin, byrjum kl 1:30 að skrá á námskeiðin, fyrstir koma fyrstir fá reglan þar í gildi. | fangor 14:12