fyrsta leikstjórnin mín að baki, leikarar stóðu sig auðvitað með prýði og í raun ekki mikið sem ég þurfti að gera. fyndið mestmegnis á þeirra ábyrgð hvortsemvar. en ég fékk að titla mig stjóra og það er alltaf gaman .þ þeir sem ekki komust í gær mega endilega láta sjá sig á sunnudagskvöldið, sýning hefst stundvíslega kl.9. tónlistin er í boði svavars sem sýnir færni sína sem dinnerundirleikari.
hraunliðar spila tvö-þrjú lög í þættinum milli 6 & 7 í kvöld á skjá einum, hef aldrei séð hann en skilst að guðrún gunnars og felix bergsson sjái um hann, ætti að verða hin besta skemmtan. hljóðfæraskipan verður einföld, kontrabassi, kassi og kassagítar.
við ætlum að eyða helginni í að hanga heima og slappa af svona til tilbreytingar. ég ætla ekki að hreyfa mig út fyrr en á sunnudag, komist ég mögulega hjá því.