ég eyddi ljúfum stundum í nornabúð í dag. var þar til brúks orðið jafnhæfingur sem er orð vikunnar. það ku notast um klaufdýr sem er jafnhófa, eða með jafna tátölu á hófum sínum. þeir sem hafa þrjár tær á hófi hljóta því að teljast oddhæfir. hvers vegna fólki hefur þótt nauðsynlegt að skilgreina klaufdýr eftir fjölda táa þætti mér gaman að vita. eru til mörg klaufdýr með þrjár tær?
nýjasta trendið í netheimum er myspace-kerfið. þar eiga allir góðir einstaklingar að skrá sig, og setja sig svo inn á vinalistann hjá ampop. það er víst málið í dag að eiga nógu marga vini á þessu kerfi. það þykir vélmennum plötufyrirtækjanna fínt og við viljum víst gleðja þau. þannig verður maður nefnilega fræg og rík rokkstjarna í útlöndum. þar ku gott að vera, segja menn. tekur stutta stund að skrá sig og jafnvel hægt að nýta sér þetta kerfi til allra mögulegra hluta.
ek hefi fundið lausnina á færslutakmörkunum bloggers. það þarf að taka út public-statusinn í settings og þá eru manni allar lengdir færar. | fangor 19:32