ég var næstum því búin að gleyma bjórdeginum. til hamingju með hann.
lesendur eru greinilega ekki alveg siðlausir, öndinni var bjargað á síðustu stundu. hún lifir nú hamingjusömu lífi á tjörninni ásamt öðrum andfuglum, sem koma væntanlega til með að verða okkur til bjargar þegar fuglaflensan kemur. löngu vitað að andfuglar núlla hina út, svona eins og pasta og antipasta. afhverju ætli anorexíusjúklingarnir hafi ekki uppgötvað það ennþá?
listahátíð í ár er tileinkuð tónlistinni. í boði eru þrjár obscjúrar óperur meðal annara atriða. ég hefði nú alveg þegið eitthvað meira í ætt við brasilíska kvennakórinn og finnska harmonikkubandið. vonast til að eitthvað fleira áhugavert leynist á dagskránni þegar hún kemst á prent.