hah! ég var að fá bréf frá tryggingastofnun. þeir eru að mögla um skort á atvinnu hjá mér í september á síðasta ári. vanti hana þurfi þeir að setja mig á fæðingarstyrk en ekki fæðingarorlof. nú á þessari stofnun að vera fullkunnugt um að ég var á launum hjá þeim í september á síðasta ári sökum veikinda, eins og reyndar allt síðasta ár, og það allt til á pappírum innan þeirra veggja. sennilega þarf ég að eyða bróðurpartinum af morgundeginum í símanum til að benda starfsmönnum á það, því það er ekki hægt að fá að tala við fólkið sem veit eitthvað nema í síma.
það sem mér finnst fyndið við þetta er að fyrst þeir hafa ekki launaseðla um vinnu samfellt í hálft ár fæ ég ekki fæðingarorlof, heldur fæðingarstyrk sem námsmaður. semsagt, fólk sem er aumingjar hlýtur að vera námsmenn. það gefur auga leið...:þ