eitthvað virðist vera að glæðast um leikara í einþáttunginn , vona að það verði allt á hreinu á mánudaginn svo æfingar geti hafist af krafti. mér finnst afar spennandi að henda upp svona örleikriti á tíu dögum, ekki síst ef ég fæ þessa stjörnuleikara sem eru í sigtinu til að vera með. tilraun mín til að véla bibba í hlutverk féll um kúbuferðina sem hann var víst búinn að skipuleggja, svo það er eins líklegt að jg taki þetta bara með trompi.
ég ætla að bregða mér heim í foreldrahús um um helgina, safna mér andagift úr austfirsku fjöllunum og ná að líta við í vinaminni.
örlítil auglýsing: ef fólk hefur hug á að sjá ampop tónleikana á nasa þann 17.mars er vænlegast að fjárfesta hið snarasta á miða.is, það ku vera mikil eftirspurn og eitthvað farið í forsölu.
óska landsmönnum öllum ánægjulegrar helgar. | fangor 12:18