yfirnorn ásta og égsjálf bárum nafngiftina "valkyrjurnar" með sóma í gær. við létum veðravíti ekki halda aftur af okkur og iðkuðum sund í laugardalnum. húrra fyrir okkur.
foreldrarnir flugu til heitari landa á hádegi, mikið sem mig langaði nú með. *andvörp*
jg er enn að drukkna í hori, greyið er búinn að liggja veikur síðan um helgi. sennilega hreiðrunin sem fór með hann.
ég lýsi eftir svandísi. ekkert hefur til hennar spurst síðan hún yfirgaf landið og þykir oss það allt hið undarlegasta. baulaðu nú svandís mín ef þú ert nokkurs staðar á lífi... | fangor 13:26