andskot! ég setti í þvottavél með kríladóti og fór svo í grindkvalasundið mitt. þegar ég kem til baka er kjallarinn á floti tugir lítra af vatni í öllum geymslum. hvað gera alltofóléttar konur í svona aðstæðum? jú, þær hafa vit á að hringja í tryggingarnar til að fá einhvern til að soga vatnið upp. þegar því er aflokið leggjast þær niður og grenja yfir því hvað allt er ómögulegt og erfitt og gera risastórt vandamál úr því að þurfa hugsanlega að fá sér nýja þvottavél án þess að hafa hugmynd um það hvort ekki er bara hægt að laga.
ég bara nenni þessu ekki lengur. enn og aftur, næsta kona sem ég heyri lýsa yfir dásemdum meðgöngu fær kjaftshögg. *fnæs* | fangor 17:47