ég lagaði þvottavélina. alveg sjálf. get því haldið áfram að leika húsmóður með ástríðu fyrir stórþvottum. húrra.
milli þvotta hef ég dundað mér við að föndra. fann skemmtilegan stað fyrir þá sem hafa tíma fyrir dundur.
ástþór er kominn heim og gistir hjá okkur þó ekki sé það lengur á sófanum. það þykir mér skemmtilegt.
einþáttungurinn minn komst að í borgarleikhúsið, við hæfi að monta sig af því þó auðvitað sé það allt leikurunum að þakka. nú og höfundinum, júlíu hannam. sem er töff þó hún sé stelpa...:þ
ég þarf nauðsynlega að komast yfir frímiða í leikhús, bæði borgar og þjóð. þeir sem liggja á slíkum og fyllast löngun til að gefa mér þá endilega hafa samband....