formúll í kópavoginum í dag. mér varð á að sprengja button í loft upp á síðustu metrunum. mun passa mig héreftir, greinilegt að áhrínihæfileikarnir magnast upp með martini innanborðs. verst að ég hef ekki hugmyndaflug til að nýta mér það til neins gagns.
skógareldarnir á mýrum hafa verið slökktir, er það vel. verst að nú er búið að auglýsa almennan þurrk upp fyrir brennuvörgum svo búast má við sinubrunum um alla borg næstu daga.
hér má finna skrif litla vandræðabarnsins hans sindra eldon um hljómsveitir í músíktilraunum þetta árið. skrifað inn fyrir úrslitakvöld tilraunanna. drengstaulinn situr af einhverjum ástæðum í dómnefnd, og finnst við hæfi að láta svona lagað frá sér. framhald umræðnanna er á síðu 6 í þræðinum. hvers vegna árni matt tekur upp hanskann fyrir gerpið er mér óskíljanlegt. hvað þarftu að gera til að teljast vanhæfur í dómnefnd ef svona lagað dugar ekki til ? þetta er þvílík vanvirðing við keppendur. ég er alveg á því að gefa þessum afar illa upplagða einstaklingi frí frá umheiminum í dálítin tíma. svo mætti einhver gjarnan taka sig til og rasskella hann bara.