hef þjáðst af svefnsýki síðustu daga, ef ég næ ekki að leggja mig um fjögurleytið er voðinn vís. martini liggur undir grun um endurhvarf til vampýrismans. enginn hörgull virðist ætla að vera á verkefnum handa jg að dunda við meðan við bíðum eftir barninu, mitt félagslíf hefur hins vegar hrapað nær núllpunktinum með hvejum deginum sem líður. sem er auðvitað alveg hreint óþolandi. ekki er heilastarfseminni fyrir að fara svo allar ætlanir um reitgerðarskrif eru vonlausar. ergó....: þeir sem hafa tíma til að leika við mig milli 10 og tvö á daginn láta vita takk :þ. | fangor 22:29