stórtíðindi í nágrenninu, siggalára orðin gift kona og freigátan skýrð gyða. ég óska þeim innilega til hamingju.
samnornir vorar vígja nýja salinn sinn, það þýðir væntanlega að fyrirhugaðir fundir á fullum tunglum verða að veruleika. jibbíkóla.
ég á undarlegan nágranna. hann svarar ekki dyrabjöllunni nema einhver hafi hringt á undan sér, svarar seint eða ekki þó barið sé að dyrum og forðast að leysa úr vandamálum sem upp koma í húsinu eftir fremsta megni. svo fær hann endalaus bréf frá lögfræðistofnunum út um allan bæ. einhvernvegin kæmi mér ekki á óvart þó ég finndi allt í einu lík í kjallaranum. nú eða heimsóknir frá handrukkurum. hann sagðist kannski vera að flytja út um mánaðarmótin. vonandi gengur það eftir.
hugleikur frumsýnir "systur" næstkomandi miðvikudag, í möguleikhúsinu við hlemmtorg. hin súperflinka doktor tóta er höfundur, vinur vor varríus leikstýrir og eðalleikkonur í hlutverkum. þangað mæta auðvitað allir sem vilja teljast hippogkúl.