ótrúlegt hvernig dagarnir fljúga frá manni. sótti bandalagsþing í gær, fékk fyrirtaks gagnrýni á fyrsta alvöru leikstjórnarverkefnið mitt ( tel ég þá ekki með sýninguna á hárinu sem við unnar geir leikstýrðum fyrir gunna gunnsteins ér um árið ) og verðlaun fyrir að hafa fengið að stýra því. ekki amalegt það, með frábæran þátt, æðislega leikara og ekki annað að gera en segja "já, þið eruð fyndin, gerum þetta" á réttum stöðum. öldungis prýðilegt og við hæfi að monta sig af því sem maður gerir minnst í sjálfur. vér hugleikarar fengum almennt jákvæðar undirtektir við okkar framlögum til margs smás, og er það vel. ekki fengum við þó að sýna jólaævintýrið í þjóðleikhúsinu, kom á óvart..:þ
martini er nú formlega tilbúinn til frumsýningar og ég vonast til þess að hann láti ekki bíða lengi eftir sér enn. ég er orðin eins og bjúgaldin og á afskaplega erfitt með hreyfingar. ætla nú samt að láta á reyna hvort ég get ennþá sungið tommalitla í tónlistarveislunni komandi þriðjudag/fimmtudag. er það reyndar stórlega til efs, andstutt sem ég er en treysti leikfélögunum mínum til að láta vita ef ég stefni í stórslys eins og ólétta konan í júróvisjón. þá er nú betra sleppt en haldið.
ég ætla að hafa auga með formúlnum í dag en yfirlýst markmið eru að hertaka pallinn hennar sigguláru, safna sólarorku og svitna bjúg.