hefur einhver annar en ég tekið eftir sjálfbirgingshættinum í degi eggerts sem kemur fram í kynningunni fyrir sjálfstætt fólk? þar sem hann segist aðspurður ekki þurfa sjálfstyrkingarnámskeið á meðan hann sér andlitið á sér í risastærð rúnta um borgina. sé hann fyrir mér með heilsa sjálfum sér með sjálfsánægðu glotti; "..hey sæti..." í hvert skipti sem rútan tekur upp pláss í miðbænum. enn ein ástæðan fyrir því að ég þarf ekki að velta fyrir mér að veita samfylkingunni atkvæði mitt í þessum kosningum. þykir verra að ég get ekki sæst á neina aðra heldur. þykir þó líklegast að ég kjósi frjálslynda. en þeir vilja hafa flugvölinn í mýrinni áfram, og það vil ég ekki. *andvörp*
síðasta skemmtun hugleiks í kjallaranum í kvöld, það vara hrikalega gaman á þriðjudaginn, verður enn betra í kvöld. mætið þið hauslausu hænur sem hafið skrópað hingað til!
svo ætla ég að sofa, safna kröftum og eiga barn um helgina *áhrín* | fangor 10:17