júróvosjón í kvöld, barnið situr sem fastast og ég sé ekki fram á að það láti sjá sig fyrir helgi. það skyldi þó aldrei mæta á tilsettum tíma...? við hjónin sækjum flotann heim í kvöld til að fylgjast með ágústu og félögum. jibbíkóla...
nýja auglýsingin fyrir venus rakvélar gilette hefur eitthvað misfarist hjá auglýsingastofunni sem beinþýddi textann. ég sé nefnilega ekki að það getir verið þægilegt að hafa fótleggi mína glóandi eftir rakstur. það ku vera vont. glansandii, það gæti ég alveg samþykkt. þarna hefur ljóslega komið upp misskilningur á merkingu orðsins "glow" þegar því hefur verið snarað á íslensku. biðla til allra auglýsingavinnumanna sem ég þekki að koma þessu til skila. ég gnísti svo tönnum í hvert skipti sem þessi óbjóður birtist í sjónvarpinu mínu...*snjerg*