seinni hluti evróvisjón í kvöld, grill og góðmeti hjá flotanum, áfram finnland !
nýjasta útspil meintra félagshyggjuafla í borginni vekur hjá mér litla kátínu. hvernig gjaldtaka á bílastæðum sjúkrahúsa getur verið réttlætt er mér fyrimunað að skilja. ég þarf að nýta mér þjónustu lsh oftar en ég kæri mig um, og get alveg sagt það að ég hef ekki alltaf verið í ástandi til að hökta fram og aftur um lóðina til að borga í gjaldmæla. hvað þá að sjúklingar almennt eigi að þurfa að leggja þetta á sig. nóg er nú samt að finna stæði við stofnunina sem er ekki upptekið af læknajeppum eða öðrum bifreiðum starfsfólks. biðtími á sjúkrahúsi er óskilgreindur, og ef þú lendir í því að þurfa að bíða færðu stöðumælasekt..?! þetta nær ekki nokkurri átt. aukin skattheimta í hverju horni, byggingaverktakaalræði í miðborginni, kröfur um að ég leggi líf mitt í stórhættu á hjóli í umferðinni hvernig sem viðrar...ég er að verða brjáluð á þessu. ég vil losna við þetta lið úr borginni. helst undir þykku lagi af tjöru og fiðri. | fangor 10:50