heimilisfólk fylgist með rock star supernova af miklum áhuga. magni stendur sig eins og hetja og á allt gott skilið. hvort það er gott að vinna með mönnum eins og tommy lee er svo aftur önnur saga. eftir því sem fækkar í keppninni verður baráttan um atkvæðin harðari og það hlýtur að koma að því að magni lendi í þremur neðstu sætunum þegar færri verða eftir. ef svo fer er auðvitað nauðsynlegt að vanda lagavalið. væri ekki sterkur leikur að taka eitthvað íslensk rokk? á mínu heimili er það engin spurning. hann hlýtur, nei, verður að taka fjöllin hafa vakað. mætti jafnvel þýða textann " mountains have been avake for a thousand years, if you stare into the rock then you can see the tears.." það meiraðsegjarímar! áfram ísland...:Þ
annars er klukkan orðin rosalega margt. alltof jafnvel. ég verð þrítug á morgun. jæks. | fangor 11:54