það liggur einhver haustlægð yfir landi og bloggum. þá er um að gera að eiga sér notalegar kvöldstundir við kertaljós og kósíheit. hús vort fylltist góðum gestum, þær systur heiða og jódís litu við og glöddu okkur með nærveru sinni góða kvöldstund, ættingjar jóns geirs litu við, ég hélt leikæfingu í stofunni og magga frænka er nýbúin kíkja til okkar, allt saman hið besta mál. ég heiðraði ömmur mínar með matargerð í gær og eldaði soðnar kjötbollur með hvítkáli, kartöflum og grænum baunum, kakósúpa með tvíbökum í forrétt. ég hefði eiginlega þurft að baka brúntertu til að gera þetta fullkomið en ætla að geyma það þangað til ég nenni að halda upp á þrítugsafmælið mitt. sem verður sennilega eftir áramót ef svo heldur sem horfir, ég nenni hvorteðer ekkert að verða þrítug nema ég geti drukkið þessar fínu rauðvínsflöskur sem hafa verið í geymslu hjá okkur undanfarið ár, hlustað á uppáhalds tónlistarmennina mína og verið barnlaus án þess að hafa áhyggjur. enn sem komið er get ég ekki sett engilbarnið í pössun á kvöldin svo ég er bundin við heimilð í einhvern tíma í viðbót. sem ég er nú bara merkilega alveg sátt við. ég er reyndar að fara á einleikjanámskeið í október hjá benna erlings og þá þarf nú úlfhildur eiginlega að vera orðin pössunarhæf milli sjö og tíu á kvöldin. en annars útstáelsis sakna ég ekki baun. | fangor 12:42