glampandi sólskin og hlýtt annan daginn í röð. eins og það er nú dásamlegt man ég allt í einu eftir þessari 14% minnkun á norðurskautsísnum. og þá er ekki lengur gott að hafa sumarveður í september.
gleðilegt verður hins vegar að teljast að við jg eigum bara 3 orð eftir af sunnudagskrossgátunni. hún skal klárast í þetta skiptið. og talandi um það, þið sem vinnið hjá morgunblaðinu á ekkert að gefa út bók með þessum krossgátum öllum ? eða er kannski hægt að nálgast þær á netinu? mig langar í maura eins og maðurinn sagði.
og nú ætla ég út að labba með engilbarnið. læt mér í réttu rúmi liggja þó hér þurfi að ryksuga, skúra og taka til. nægur tími til slíkra verka síðar. | fangor 13:10