þetta er virkilega góð bók.. hún er svo góð að mig langar bæði til að þýða hana og gera upp úr henni leikgerð. mér þykir reyndar líklegt að hún sé í þýðingu þar sem hún fékk appelsínugulu verðlaunin í fyrra, en það er örugglega enginn að gera leikgerð á íslensku.
hún er svo hrikalega góð að ég get ekki beðið eftir að einhver sem ég þekki lesi hana svo við getum sest niður og rætt hana. það er laaangt síðan mig hefur langað til að setjast niður og tala um bók við einhvern svo drífið ykkur gott fólk....og varðandi leikgerð býður hún upp á áhugaverðar lausnir þar sem hún er skrifuð í bréfaformi og er upprifjun á atburðum. mig bráðvantar einhvern til að ræða það við líka. best væri náttúrulega ef fleiri en einn gæfu sér tíma. ha, krakkar..? | fangor 00:04