mikið var nú notalegt að hafa myrkurið í gærkveldi. alveg ótrúlegt hvað þessi fáu ljós sem eftir urðu skáru í augun. mikið hefði nú samt verið gaman ef öll fyrirtækin í miðbænum hefðu lufsast til að slökkva hjá sér þennan hálftíma . og plebbarnir hefðu sleppt því að koma allir keyrandi niður í bæ rétt fyrir tíu. á bílunum með ljósunum á krakkar...geplúnk.. hefði nú ekki verið nær að flykkjast í grafarholtið eða út í gróttu til að sjá stjörnurnar og finna myrkrið en að fylla miðbæinn af bílljósum?
svo er ég reið í dag. ég hjálpaði vinkonu minni fyrir tveimur árum með því að skrifa fyrir hana verkefni sem hún notaði í skólanum sínum og fékk mjög gott fyrir. það var alveg á tæru að ég skrifaði það fyrir hana þá, og ekkert vandamál. svo kemst ég að því að hún er búin að nota það síðan og ætlar að nota það meira og sæki um alls konar styrki fyrir það, og allt í einu er ég ekki skrifuð fyrir því lengur. ég spurði hana af hverju það væri og þá hélt hún að það skipti engu fyrst þetta var skólaverkefni. ókei, látum það liggja á milli hluta. svo spurði hún mig hvort að það skipti mig miklu máli að vera skrifuð fyrir þessu núna? já andskotinn! ég skrifaði þetta fyrir hana og það er lágmark að á mann sé minnst. og sérstaklega þegar annað fólk ætlar að vinna við það sem maður gerir fyrir það. aaaaargh! | fangor 08:23