ég er búin að vera hálf dösuð eftir fasteignabraskið. nú er hins vegar allt að komast í samt lag aftur.
súpergrúppan sláttuvélin hélt kynningargigg fyrir forkólfa bæjar- og menningarhátíða á landinu í gær, það var allt hið áhugaverðasta og verður okkur vonandi uppspretta atvinnutækifæra vítt og breitt um landið næsta sumar. það ætti auðvtiað að vera öllu áhugafólki um bætta hrynvitund kappsmál að sjá til þess að við verðum sem víðast.
strákarnir í stundinni verða í smáralindinni í dag með ívari og ísgerði ef fólk vill mæta með börnin. þau eru á dagskrá hálffjögur.
í dag erum við að hugsa um að fá okkur annan bíl sem eyðir ekki eins og andskotinn en er samt með plássi fyrir barn og trommusett. þeir eru vandfundir en okkur hefur líklega tekist að grafa upp eintak.
hér ríkir almenn tilhlökkun með komandi flutninga og ég er byrjuð að raða niður í kassa. húrra! | fangor 09:55