spennandi tímar. gaman að lesa leikrit, tvö námskeið á morgun; ungbarnasund hjá úlfhildi og leikhúsförðun II hjá mér. er að berjast við að klára sængur/skírnargjöfina hennar iðunnar aspar. það mjakast. skrifum vonandi undir sölusamninginn á íbúðinni okkar á morgun og getum borgað skuldir. sem er gott. þá get ég nefnilega borgað þessi námskeið sem við mægðurnar erum að fara á. og hætt að skulda kbbanka aleiguna. skulda öðrum hana í staðin en finnst það þægilegri tilfinning. sérstaklega eftir að ég sá nýja apple-eftirlíkinga útibúið í kringlunni, gott að þeir eyða peningunum mínum í eitthvað þarft.
eyði dágóðum tíma í að keyra um á nýja bílnum okkar. hann er æði. hefði einhver sagt mér fyrir ári síðan að ég ætti eftir að eiga raðhús og upphækkaðan jeppa að ári liðnu hefði ég dáið úr hlátri. allir sem þekkja mig líka. en einhvernvegin laumaðist ferköntunin aftan að mér. mér þykir það fínt :Þ | fangor 00:09