annað skítaveður á leiðinni. fari það allt og veri. mér leiðist fátt meira en rok og rigning. má ég þá biðja um almennilega stórhríð eða hríðarbyl með ofankomu upp á meter eða meira. það kveikir einhvernvegin á íslendingnum í mér. vatnsviðrið fær mig hins vegar alltaf til að velta fyrir mér hvers vegna í ósköpunum fólk hangir á þessu skeri í veðurfarslegri útlegð. svo ekki sé minnst á þá gastrónomísku, þó það horfi nú reyndar til betri vegar í þeim efnum.
ég er með svo alvarlegt tilfelli af ljótunni að ég stend í allsherjar fegrunum. augnhár og brúnir lituð í dag, gerfibrúnka á smettið í kvöld til að draga úr draugalegum áhrifum. nýtt hár á morgun. íðilfegurð skal náð að nýju! | fangor 19:20