engilbarnið er enn með háan hita, hálsbólgu og hor. hún er þó merkilega hress með ástandið og hefur fullt fararleyfi, það ku jafnvel vænlegra að nýta suðrænar sólskinsstrendur til að ná úr sér íslensku vetrarhori. það er auðvitað bara gott.
ég er í geðstropskasti yfir öllu sem ég á eftir að gera. pakka niður, senda jólakortin, kaupa jólagjafir, redda allskyns hlutum...sveiattan barasta. held að ég hafi verið að slugsa við þetta undanfarið til að ná dálítilli spennu í líf mitt, fá svona prófastemningu. þá er bara að hella upp á fítonskaffi með gingsengtei og láta hendur standa fram úr ermum. verst að þá finnst mér eins og ég eigið að vera á andarunganum með sígarettuna í annari og pennann í hinni. en það er víst ekki vel séð með brjóstamjólkinni og gangast aukinheldur ekki nokkurn skapaðan hlut.