bara rúmlega dagur þangað til ég fæ manninn minn heittelskaðan til mín. vona að skítaveðrið heima tefji ekki för hans um of og treysti á guð hinna yfirfullu flugvalla til að skila honum áfram frá london. standsted á þorláksmessu? bara tilhugsunin vekur viðbrögð. svona hlaupa um í panikki tafsandi íííík! viðbrögð.
annars höfum við það ljómandi gott. okkur hefur verið hálfkalt síðustu tvo daga, hitinn farið niður undir tíu-tólf stig. næturnar eru kaldar, það var þriggja stiga hiti síðustu nótt. þá er eins gott að hafa vin minn herra gasofn hér við höndina til að hita upp íbúðina. ávextirnir vaxa samt sem aldrei fyrr. mér skilst að nú sé sætasta uppskeran fyrir höndum því haustrigningarnar hafa verið með ágætum og kuldinn hefur einhver áhrif. ég hugsa að ég myndi láta mig falla hið snarasta væri ég appelsína í 3 stiga hita í þessu raka loftslagi. en það er nú bara ég.
hverjir eru búnir að fá jólakortin frá okkur? ef einhver telur gróflega á sér brotið þegar kemur að heimtum þá biðst ég afsökunar nú þegar.