heyriði krakkar. jólalag hrauns komst í úrslit í jólalagakeppninna hjá rás 2. það væri nú ósköp fallegt af ykkur að hlusta og kjósa. þarna sungum við ásta eins og englar og heyrist við óma enn, þó að það sé nú reyndar ekki tekið fram. við erum auðvitað órjúfanlegur partur af bandinu svo það er kannski óþarfi, ha, hmmm..?
það eina sem mér þykir leiðinlegt við að vera erlendis yfir jólin er að ég missi af jólatónleikunum þan 22. des. það hefur ekki gerst áður. ég er heldur ekki búin að taka upp jólalag fyrir plötuna í ár. stórskandalar allt saman. treysti á að fólk taki höndum saman og flykkist á rósenberg til að koma sér í jólaskapið. einhver má búa til youtube innslag og senda mér takk.
aðsóknarmet ku hafa verið slegið á jólabónusnum í gærkveldi og er það vel. fullt af nýju fólki orðið aðdáendur og við munum slá öll met í almennum aðsóknum á ári komanda. ekki spurning.
úlfhildur gerir pilatesæfingar eins og fagmaður þessa dagana. þeir sem vilja sjá hana áður en við förum verða eiginlega að kíkja í kaffi um helgina. mánu- til miðvikudags fullbókaðir.