jóladiskurinn hennar tótu hefur verið linnulítið í geislaspilara heimilisins síðan á þriðjudagskvöldið. hann er algerlega uppáhalds og verður órjúfanlegur partur af jólahaldi okkar héðan í frá. ég ætla að gefa báðum ömmunum mínum hann í jólagjöf og jafnvel fleirum. diskur þessi heitir "það besta við jólin" og er eftir hana þórunni guðmundsdóttur. diskinn má nálgast hjá höfundinum sjálfum.
helgarföndrið er svo að skoða félagaskrá hugleiks. hún er alveg með ólíkindum, það er ótrúlegasta fólk sem hefur verið flækt í tengslanet félagsins. fyrsti félagi á skrá er til dæmis aðalbjörg nokkur svandís. þori að veðja að lesendur allir finna einhvern sem þeir þekkja og líklega einhvern sem þeir vissu ekki að hefðu tekið þátt. hæ, hó, allir sem einn.. | fangor 10:50