jólabónus hugleiks var sýndur í gær við góðar undirtektir. er á engan hallað þó ég segi að síðasti þátturinn á dagskránni "mikið fyrir börn " eftir dr.tótu í leikstjórn hrefnu hafi staðið upp úr. hann var ekki bara feiknavel sunginn heldur með eindæmum vel unninn af hálfu leikstjóra og skemmtilega leikinn. húrra fyrir þeim. einnig var forleikurinn "skurður" eftir sigga hinn skemmtilegasti, þó ívið fyndari fyrir þá sem sáu hannyrðir. sem styrkir þá skoðun mína að formaðurinn eigi að skrifa einn enn og svo sýnum við trílógíuna alla í vor. nýliðun var með meira móti í þessari dagskrá og efnilegt fólk á ferð, verð að hrósa siggu láru fyrir að finna fleiri sviðsvæna karlmenn til handa félaginu.
allir sem mögulega geta ættu að koma á fimmtudagskvöldið, húsið opnar um hálfníu og dagskrá hefst 21:00. jafnvel þó fólk komist ekki fyrr en seint!