enn eina ferðina sýndi engilbarnið að hún ber það nafn með rentu. flugferðin gekk eins og í sögu, hún svaf fyrstu tvo tímana og lék sér restina. sjarmeraði alla nálæga farþega með fádæma skapgæðum og nældi sér í afa í næstu sætaröð sem hjálpaði okkur með farangurinn. hún virðist líka kunna vel að meta veðráttuna og dauðfegin að geta aftur sofið úti við á hverjum degi. það þarf vart að taka fram að móðir hennar er ekki minna ánægð með veðurfarið og hryllir við heimkomu í janúar. eins gott að við erum að fara að flytja, þá ég hef engan tíma til að svekkja mig yfir kulda og roki.
við höfum það semsagt ljómandi gott utan söknuðar eftir jóni geir en hann skilar sér eftir rúma viku. þá verður allt fullkomið.
ég við fólk vinsamlegast um að hringja ekki í mig nema brýna nauðsyn beri til, heldur má senda sms eða tölvupóst á gmil. | fangor 17:34