ég er komin heim, ísland er kalt, blautt og leiðinlegt. það er maðurinn minn hins vegar ekki og ekki heldur nýja fína húsið okkar svo þetta jafnast út í bili. við byrjuðum að mála í dag, höldum því áfram á morgun og getum vonandi flutt mesta draslið i næstu viku. við þiggjum alla aðstoð sem býðst, ef einhver nennir að fá sér rúnt í mosó með nokkra kassa. við ætlum að flytja minna dót í bitum eftir ferðum og fá svo bíl undir stóra dótið. það verður nú aldeilis gaman að koma því niður stigana. jammjamm. þeir sem verða okkur til aðstoðar fá verðlaun í fljótandi formi. svo verður haldið virðulegt kaffisamsæti þegar við nennum. og grímuball.