til að kóróna allt saman er jg bæklaður á hné. ég auglýsi því eftir aðsoð allra vopnfærra manna og kvenna frá kl 18 á morgun til flutninga. þeir einstaklingar sem telja sig búa yfir líkamlegum styrk og umtalsverðri rýmisgreind óskast til aðstoðar strax upp úr 6, þeir sem treysta sér heldur til að laumast með einn kassa eftir hentugleikum þess vegna strax í dag því ég svo afkasta svo litlu með barnið á handleggnum. ég kem nánast engu í verk. flutningar hafa því gengið heldur hægara fyrir sig en ætlað var. þeir sem ekki nenna að bera kassa geta líka haft ofan af fyrir barninu svo ég geti gert eitthvað...
fór á hlustendaverðlaun fm í gærkveldi með eiífðarnýliðunum og var það hin besta skemmtan. aflslappað andrúmsloft og mun betri skipulagning en á íslensku tónlistarverðlaununum, ættu þeir framkvæmdaraðilar að skammast sín barasta. | fangor 11:50