það fór nú ekki svo að barnið slyppi við veikindin. 40 stiga hiti í 2 daga og mók þangað til í gær. hún er ennþá lasin. jg er að skríða saman og foreldrarnir héldu loks af stað austur á land í dag hóstandi pestarrestum. ég sjálf er svo með vott af hálsbólgu en óbuguð enn, ætla mér að hundsa hausverkinn sem er að ágerast.
þetta veikindaástand allt saman þýddi náttúrulega að ég missti af hálfvitagigginu um helgina. fór í sund með yfirnorn ástu í gær til að fá mér ferskt loft. sennilega hef ég ekki þolað það og fengið bráða súrefniseitrun sem lýsir sér með höfuðverk. jahahahá.