foreldrarnir sneru aftur frá útlandinu með flensu dauðans. náðu sér í hana merkilegt nokk hjá litla kút sem hitti þau veikur í amsterdam og smitaði þau og katrínu. jón geir liggur flatur en við úlfhildur höngum en uppréttar merkilegt nokk. smá hitavella og pirringur í hálsi en ekkert alvarlegt ennþá amk. sjöníuþrettán. stend því fastar á fótunum að kjúklingasúpa ástarinnar hafi haldið mér flensulausri. hér hefur því enginn verið til stórræðanna síðustu daga. ég vonast samt til að komast á hálfvitagigg um helgina en skilst að plágan hafi lagt amk. einn þeirra í bælið. vona að það komi ekki að sök.
átti alveg eftir að óska formanninum til hamingju með dótturina, til lukku. nú er bara að setjast við skriftir og semja afkvæmastykki til sýninga 2016. aðrir félagar hafa árið til að bæta í hópinn...
er ennþá að melta pistilinn minn um barnfjandsamlegt samfélag á íslandi. fyndna svipinn sem kemur á fólk þegar ég segist ætla að vera ár og jafnvel lengur í barneignarfríi. ennþá fyndari svipinn sem fólk setur upp ef ég segist vera heimavinnandi húsmóðir og sleppi því að minnast á barnið. ótrúlegt alveg. og ég sem er menntuð húsmóðir..:þ | fangor 23:57