Epli og eikur, hið stórkostlega glæpa- og söngvaleikrit ( ný kategoría) Hugleiks er í fullum sýningum um helgina. Það er orðið uppselt á einhverjar sýningar eftir páska svo ég hvet alla sem vilja skemmta sér eina kvöldstund til að drífa sig um helgina.
ég er með harðsperrur frá hnakka niður í tær. tveir dagar í ræktinni fara svona með mann. sérstaklega ef maður villist óvart inn í vitlausan sal og ákveður að prófa bara tímann sem er þar og fær óvart eina lausa plássið sem er fremst hjá kennaranum. í stað þess að mjaka mér snyrtilega í gegn um hóp af fólki með lóð á lofti og baða mig í svitaslettunum á leiðinni út ákvað ég að gá hvað ég héldi þetta lengi út. 40 mínútur og ég er ennþá með blóðbragð í munninum. vel að merkja er tíminn klukkutími svo ég hef að einhverju að stefna þ.e að æfa þrek með lögreglu og slökkviliðinu. komst þó að því að ég er í betra formi en ég hélt miðað við mörstuðul.