þriðjudagskvöldið 6.mars verða tónleikar með henni áslaugu á domo í þingholtsstræti. hún ætlar að syngja gospel og blús og með henni er úrvalsband úr fíh. tónleikarnir hefjast kl 9.
þar sem áslaug hefur ekki haldið tónleika leeeeengi mæli ég eindregið með því að fólk drífi sig. ekki á vísan að róa með það hvenær næstu tónleikar verða. við jg ætlum enda bæði að fara og hlýða á dívuna. það hefur ekki gerst svo mánuðum skipti að við komumst saman út svo heilt á litið ætti þetta að verða hið prýðilegasta kvöld.