skottúr austur á hérað og fjörð lokið. mikið afskaplega er gott að vakna í vinaminni og líta beint upp í sólbaðaðan bjólfinn, það er með ólíkindum hvað batteríin endurhlaðast snöggt. það er fallegt á héraði en seyðisfjörður er orkustöð. vildi hafa getað stoppað lengur en jg þurfti að fara í nefbrot í morgun svo það var ekki í boði. nefbrotið gekk með ágætum, núna lítur hann út eins og nefapi með grisju í annari nösinni. eftir að bólgan hjaðnar og brotið grær ætti hann loksins að geta andað eðlilega. þess utan getur hann auðvitað sagst vera búinn að fara í lýtaaðgerð eins og aðrar poppstjörnur þar sem miðsnesið var rétt af. næstu dagar verða nýttir í að hjúkra honum til heilsu utan annað kvöld þar sem ég ætla á frumsýningu hjá hugleik fái ég einhvern til að sitja yfir honum og barninu. það er ef við verðum ekki fokin fjandans til, hér leikur allt á reiðskjálfi. reyndar er bara notalegt að hlusta á regnið bylja á þakinu. ég ætla að kveikja á fleiri kertum.