ágætis helgi að baki, trommuhringur í kringlunni sem fjölskyldan tók öll þátt í og vakti gríðarlega kátínu hjá úlfhildi, um kvöldið var svo afmæli hjá gumma gítar sem vakti gríðarlega kátínu hjá mér.
skottúr austur á land á þriðjudag, komum aftur á miðvikudagskvöldið. ég ætla að fara og knúsa fallegu ömmuna mína og leyfa henni að knúsa nöfnu sína. jón geir ætlar að halda stuttan fyrirlestur og stjórna hugflæðifundi um hlutverk gamla sláturhússins. við gistum í vinaminni ef við komumst yfir heiðina fyrir veðri.
það er frumsýning á eplum og eikum næstu helgi, um að gera að panta miða snemma þar sem möguleikhúsið tekur ekki allt of marga í sæti. að vanda er um að ræða nýtt íslenskt leikrit, í þetta skipti er um að ræða gamanleik með söngvum og frábærri tónlist eftir þórunni guðmundsdóttur. komi hver sem betur getur. | fangor 23:11